
Vertu velkomin!
Frímúrarareglan á Íslandi var stofnuð 23. júlí 1951 og í dag eru félagsmenn um 3.600 talsins um allt land.
Í dag fer fram öflug starfsemi í Regluheimilinu í Reykjavík og 12 stúkuhúsum á Akranesi, Stykkishólmi, Ísafirði, Sauðárkróki, Siglufirði, Akureyri, Húsavík, Egilstöðum, Vestmannaeyjum, Selfossi, Reykjanesbæ, Hafnarfirði.
Á Íslandi eru starfandi 18 St.Jóh stúkur, 6 St.Andrésarstúkur, 3 Fræðslustúkur, Stúartstúkan á Akureyri og Landsstúka Frímúrarareglunnar á Íslandi.
Stórmeistari Reglunnar, Kristján S. Sigmundsson hefur ákveðið að þessara tímamóta Reglunnar verði minnst hjá frímúrarastúkum á landinu með opnu húsi fyrir bræður, fjölskyldu þeirra og vini. Með því vill Stórmeistari Reglunnar leggja áherslu á þýðingu fjölskyldunnar í starfi Reglunnar, styrkja tengslin og mikilvægi grasrótarstarfsins innan henna og að þakka bræðrum fyrir liðin ár.