Á annað þúsund gesta lögðu leið sína í Regluheimilið í Bríetartúni núna á sunnudaginn, þegar Frímúrarareglan á Íslandi bauð bræðrum, fjölskyldum þeirra, börnum og vinum til opins húss. Dagurinn var liður í því að efla tengsl innan Reglunnar, opna dyrnar fyrir nánustu aðstandendum bræðra og gefa gestum tækifæri til að kynnast húsinu, sögu Reglunnar og því samfélagi sem þar hefur byggst upp í gegnum árin.
Mikil ánægja var með daginn, sem einkenndist af hlýju, gestrisni og góðum anda. Gestir streymdu í húsið frá klukkan tvö og nutu þess að ganga um sali og rými sem margir höfðu ekki áður séð. Jóhannesar- og hátíðarsalurinn voru opnir gestum, auk minjasafns, bókasafns, bræðrastofu og fleiri rýma Regluheimilisins. Margir nýttu tækifærið til að fræðast um húsakynni, sögu og starfsemi Reglunnar, en ekki síður til að eiga góða stund með fjölskyldu, vinum og bræðrum.
Stórmeistari Reglunnar, Kristján Sigfús Sigmundsson, ávarpaði gesti og lagði í máli sínu áherslu á mikilvægi fjölskyldunnar í starfi Reglunnar, samhug bræðra og þá þýðingu sem grasrótarstarfið hefur haft um land allt. Þá bauð Sævar Kristjánsson, stólmeistari stúkunnar Gimli, gesti velkomna fyrir hönd þeirra stúkna sem báru ábyrgð á deginum og skipulagningu hans.
Kæru systur – bræður – vinir og börn!
Fyrir hönd Frímúrarareglunnar á Íslandi býð ég ykkur innilega og bróðurlega velkominn í Regluheimili Frímúrarareglunnar í tilefni þess að í sumar eru liðin 75 ár frá því að Frímúrarareglan á Íslandi var stofnuð sem sjálfstæð regla, nánar tiltekið þann 23. Júlí 1951. Fram að því eða frá árinu 1919 starfaði Reglan undir stjórn Dönsku Frímúrarareglunnar.
Við ákváðum að minnast þessara tímamóta Reglunnar hjá öllum frímúrarastúkum á landinu með opnu húsi fyrir bræður, fjölskyldur þeirra og vini.
Með því vill Frímúrarareglan leggja áherslu á þýðingu fjölskyldunnar í starfi Reglunnar, styrkja tengslin og mikilvægi grasrótarstarfsins innan Reglunnar. Og síðast en ekki síst að þakka fyrir liðin ár.
Í dag fer fram öflug starfsemi í Regluheimilinu í Reykjavík og 12 stúkuhúsum á Akranesi, Stykkishólmi, Ísafirði, Sauðárkróki, Siglufirði, Akureyri, Húsavík, Egilstöðum, Vestmannaeyjum, Selfossi, Reykjanesbæ og í Hafnarfirði. Um 3.600 bræður starfa í þessum stúkum um allt land.
Langflestar stúkur á landsbyggðinni hafa haldið upp á 75 ára afmælið með sama hætti og við gerum hér í dag. Mikil ánægja hefur er með þetta framtak meðal fjölskyldna og vina frímúrarabræðra.
Og í dag opnar Reglan leyndardómsfull húsakynni sín hér í Regluheimilinu og býður gestum að skoða og kynna sér, a.m.k. að hluta til, þá starfsemi sem hér fer fram. En frímúrarastarf á sér margra alda sögu sem varðveitir tímalausan og verðmætan arf. Verðmætast er þó innra starf Reglunnar sem felst í „mannrækt.“ Markmið Reglunnar er að göfga og bæta mannlífið með því að efla meðal bræðranna; þroska, virkni og velvild, samfélaginu til heilla.
Stúkufundir eru mjög mikilvægir þættirnir í starfsemi Reglunnar en þá er lokað um stund á hið ytra áreiti daglegs lífs og sjónum beint að framkvæmd siðakerfis sem skapar andrúmsloft, gjörólíkt öllu sem flestir þekkja í hinum ytra heimi.
Þrátt fyrir mikilvægi stúkufunda fyrir bræðurna, þá leggur Reglan áherslu á að fjölskyldan skal ávallt vera í fyrsta sæti.
Ég vil nota tækifærið og þakka stólmeisturum stúknanna í Reykjavík fyrir að halda utan um og undirbúa þennan dag.
Njótið vel og enn og aftur verið hjartanlega velkomin.
Það voru St. Jóhannesarstúkurnar í Reykjavík, Edda, Mímir, Gimli, Glitnir, Fjölnir og Lilja, sem sáu um undirbúning, skipulag og utanumhald viðburðarins. Fjöldi bræðra lagði hönd á plóg og lagði sitt af mörkum til að dagurinn yrði bæði vel skipulagður og notalegur fyrir gesti á öllum aldri.
Í matsalnum var boðið upp á kaffi, kleinur og kransakökur, sem gestir kunnu vel að meta. Þar gafst einnig kostur á að setjast niður og horfa á myndband frá árinu 2019 um sögu Reglunnar og reglustarf á Íslandi. Myndbandið vakti áhuga margra og varð góð viðbót við þá upplifun að ganga um Regluheimilið sjálft og sjá þá fjölbreyttu starfsemi sem þar fer fram.
Frímúrarareglan á Íslandi var stofnuð 23. júlí 1951 og eru félagsmenn hennar nú um 3.600 talsins um allt land. Auk öflugrar starfsemi í Regluheimilinu í Reykjavík fer fram starf í stúkuhúsum víða um land, frá Suðurnesjum og Suðurlandi til Vestfjarða, Norðurlands og Austurlands.
Opna húsið í Bríetartúni tókst með miklum ágætum og var Reglunni til sóma. Dagurinn sýndi glögglega hversu sterk tengsl bræðra, fjölskyldna og vina eru í starfi Reglunnar og hversu mikilvæg slík samvera er. Gestir fóru heim með betri innsýn í sögu, húsakynni og starf Frímúrarareglunnar á Íslandi, og ekki síður með minningu um ánægjulegan dag í góðum félagsskap.