Fjölskyldudagur í Heklulundi 2026

Fjölskyldudagur og gróðursetning birkiplantna í Heklulundi 30. maí 2026

21. maí 2026

Nú er fjölskyldudagur Heklubræðra í Heklulundi laugardaginn 30. maí 2026 þar sem bræður og fjölskyldur eiga góða stund við gróðursetningu birkiplantna og grill á eftir.

Við reiknum með mætingu um kl. 12 og að vinna við gróðursetningu muni hefjast skömmu síðar. Athugið að hafa fatnað í samræmi við veðurspá, vinnuhanska og góðan skófatnað. Land og skógur gefa 3000 birkiplöntur og lána jafnframt verkfæri til gróðursetningar. Við í starfshópnum verðum á staðnum.

Störfum við gróðursetningu lýkur um kl. 15 til 16. Þá verða Röðulsbræður búnir að gera grillið klárt. Hver og einn hefur með sér mat á grillið og drykk að eigin vali.

Húsið í Heklulundi

Húsið í Heklulundi

2023-05-27

Bræður geta mætt með ferðavagninn eða tjaldið. Það er nóg pláss á flötinni við húsið. Það er takmörkuð aðstaða á svæðinu, það er eitt klósett inni í húsinu og þar er aðgangur að vatni og rafmagni til að hlaða síma og önnur smáraftæki. Það eru hins vegar ekki rafmagnstengi fyrir ferðavagna eða rafbifreiðar.

Leiðin að Heklulundi frá Reykjavík

Ekinn er Suðurlandsvegur nr. 1 um Selfoss að vegamótum Landvegar nr. 26 á vinstri hönd (veitingasala o.fl. við vegamótin stuttu áður en komið er að Hellu).

Síðan er ekinn drjúgur spölur upp Landveg þar til kemur að bænum Galtalæk á hægri hönd. Þá er ekið ca. 1 km áfram þar til gula húsið okkar og fáninn sjást á vinstri hönd. Þá er komið að skilti sem á stendur „HEKLULUNDUR“. Þar er valinn slóðinn til vinstri og um leið komið á áfangastað.

Hér er slóðinn merktur á korti: https://maps.app.goo.gl/YeoXQjAb9J43S9Qm9

Heklulundur leiðin að húsinu

Með bróðurlegri kveðju frá starfshóp Hekluskógarverkefnisins 2026:

Bjartmar Freyr Jóhannesson, formaður, Almar Eiríksson, Ársæll Þorsteinsson, Einar Bjarnason, Friðrik Sigurðsson, Guðni Þór Gunnarsson, Haraldur Sigurðsson, Helgi Haraldsson, Hilmar Guðmundsson, Hjörleifur Valsson, Ingvar Hafsteinsson.