Frímúrarinn slær sumartaktinn

04. júní 2026

Frímúrarinn, tímarit Frímúrarareglunnar á Íslandi er komið út og er það fyrra tölublað af tveimur á árinu.

Þar kennir ýmissa grasa og ætti að verða góð upprifjun fyrir bræður á liðnu starfsári en einnig hvatning til þess að mæta röggsamir til leiks þegar starfið hefst á hausti komandi.

Golfari af guðs náð

Í viðtalinu er meðal annars að finna skemmtilegt viðtal við Jón Ásgeir Eyjólfsson, fyrrverandi stólmeistara St. Andrésarstúkunnar Hlínar en þar rifjar hann upp ferilinn og ræðir meðal annars ólæknandi golfbakteríu sem vitað er að hrjáir marga frímúrarabræður um land allt.

Þá er í blaðinu sagt af stærstu viðburðum á líðandi starfsári, ekki síst Regluhátíð og Stórhátíð og þeim tíðindum sem fólust í þeim fundum. Einnig er í blaðinu áhugaverð umfjöllun um einstæðan tónlistarfund sem haldinn var á vettvangi stúkunnar Fjölnis á vordögum.

Mannabreytingar

Fjallað eru um breytingar á æðstu stjórn Reglunnar sem óhjákvæmilega hafa fylgt kjöri nýs stórmeistara og þá hafa margir nýir bræður tekið við stjórnartaumum í stúkum á Jóhannesar- og Andrésarstígum, auk Landsstúkunnar og kapítulans á Akureyri.

Er það von ritnefndar blaðsins að það verði bræðrum til upplýsingar og yndisauka en geti um leið orðið til þess að vekja áhuga ókunnugra á starfi Reglunnar. Blaðið er enda opið öllum til lesturs og hvetjum við bræður til þess að láta það liggja frammi, bæði á heimilum sínum en einnig á vinnustöðum þar sem því verður við komið.

Aðgengilegt á vefnum

Blaðið er nú á leið í dreifingu til bræðra um landið þvert og endilangt en það er nú einnig aðgengilegt á vefnum eins og öll fyrri tölublöð.

Smellið hér til að skoða blaðið, ásamt fyrri tölublöðum.

Ritnefndin þakkar sérstaklega þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem lagt hafa útgáfunni lið. Án þeirra liðsinnis væri ekki hægt að halda úti jafn öflugri útgáfu og raun ber vitni.