Félög háskólanemenda við Háskóla Íslands hafa um nokkurra ára skeið sýnt mikinn áhuga á að heimsækja Frímúrararegluna og kynnast starfsemi hennar.
Það sem af er þessu starfsári hafa alls 6 nemendafélög heimsótt Regluheimilið í Reykjavík. Þar ber fyrst að nefna Mími, félag stúdenta í íslensku, almennum málvísindum og táknmálsfræði kom í heimsókn 10. október 2025 og Soffía félag heimspekinema sem heimsótti okkur þann 7. nóvember 2025. Þann 21. nóvemer 2025 heimsóttu okkur tvö nemendafélög, Fróði nemendafélag sagnfræðinema og Homo, nemendafélag mannfræðinema. Föstudaginn 27. febrúar sl. komu svo tvö önnur nemendafélög í heimsókn, Alfreð nemendafélag enskunema og Politica, nemendafélag stjórnmálafræðinema er var þessi heimsókn sú fjölmennasta hingað, til en heildarfjöldi gesta í þeirri heimsókn var rúmlega 40 manns.

Fyrirkomulagið er með þeim hætti að gestirnir mæta venjulega kl. 16 og hefst þá að hálfu Fræðaráðs kynning á starfsemi Reglunnar og að því loknu er boðið upp á óformlegt spjall og leitast er við að svara þeim spurningum sem brenna á vörum gesta. Að því loknu er gengið um opin rými og starfssalur skoðaður. Þá er farið í heimsókn á Bókasafn og á Minjasafn Reglunnar. Að þessu sinni gafst gestum jafnframt tækifæri til að skoða ljósmyndasýningu sem Ljósmyndasafn Reglunnar setti upp og var formlega opnað þennan sama dag.
Af hálfu Fræðaráðs hafa á þessu starfsári fulltrúar safna Reglunnar ásamt YAR og bróður Magnúsi Eðvald Halldórssyni haft umsjón með þessu kynningarstarfi. Þeir sem tóku þátt að þessu sinni voru br. Einar Thorlacius, bróðir Sigurður Júlíusson ásamt bróður Hagerup Má Ísaksen og bróður Guðmundi Þorgrímssyni auk Guðmundi Kr. Tómassyni YAR.
Fram til þessa eru það einkum nemendur í Háskóla Íslands sem komið hafa í heimsókn. Rétt er að vekja athygli á að Fræðaráð getur skipulagt almenna upplýsinga- og kynningarfundi ekki bara fyrir háskólanema, heldur einnig aðra hópa sem áhuga hafa á að heimsækja Frímúrararegluna og kynna sér starfsemi hennar. Ef áhugi er á slíku má senda tölvupóst á netfangið [email protected].