Heldribræðrakaffi Gimli

10. mars 2026

Sunnudaginn 8. mars síðastliðinn hélt St.Jóh.st. Gimli sitt síðara Heldribræðrakaffi ársins. Samsætið var með hefðbundnu sniði og hófst klukkan 15:00, en bræðrum og systrum hafði verið boðið af Bræðranefnd stúkunnar að þiggja kaffi og veitingar í matsal Regluheimilisins í Reykjavík.

Stólmeistari stúkunnar, br. Sævar Kristjánsson sagði við þetta tækifæri frá frímúraraferð nokkurra Gimlibræðra til Danmerkur, þar sem meðal annars var heimsótt St. Jóhannesarstúka sem ber nafnið Excelsior, en það er einmitt einkunnarorð Gimli. Sagt var frá ferðinni í máli og myndum og naut Sævar fulltingis Br. Péturs Davíðssonar við myndasýningu sem fylgdi skemmtilegri frásögninni.

Br. Sævar veitti einnig br. Steingrími V. Björgvinssyni 40 ára starfsaldurmerki Reglunnar við þetta tilefni.

Eins og venjulega töfraði br. Reynir Magnússon fram ljúffengar veitingar og áttu allir saman góða stund á þessum sunnudagseftirmiðdegi.

Meðfylgjandi myndir tók br. Jón Svavarsson