Lokafundur Heklu 2026

16. apríl 2026

Lokafundur St. Andrésarstúkunnar Heklu verður mánudaginn 20. apríl 2026. Á fundinum verða hefðbundin lokafundarstörf sem fela í sér kosningar embættismanna og skipanir í embætti stúkunnar.

Bræðurnir Hjörleifur Valsson, Sveinn Arnar Sæmundsson og Ásgeir Páll Ágústsson munu bjóða upp á lifandi tónlist. Á fundinum verður fluttur menúett úr Haffner serenöðu Mozarts, Kvöldstjarnan úr Tannhauser eftir Wagner og intermezzo úr Cavaleria Rusticana eftir Mascagni.

Við bróðurmáltíðina snæðum við kótilettur að hætti hússins.